Festi vinnur að því að auka lífsgæði - alla daga og auka verðmæti í sátt við samfélagið.

Sjálfbærni hjá Festi

Samstæða Festi þjónustar landsmenn með nauðsynjavörur og -þjónustu og lítur á sjálfbærni sem órjúfanlegan hluta af traustum og framsýnum rekstri.

Fjölbreyttur rekstur veldur því að félög Festi standa frammi fyrir ólíkum áskorunum í sjálfbærni, en á sama tíma eru tækifærin til framfara og áhrifa víðtæk. Félagið vinnur markvisst að því að þróa vöruframboð og þjónustu í takti við sjálfbærnimarkmið, leiða orkuskipti, draga úr sóun og styðja við verndun auðlinda. Það er trú stjórnenda Festi að ýmis viðskiptatækifæri felist í sjálfbærni og stefnumið í þágu sjálfbærni muni, ásamt fleiri þáttum, styrkja enn frekar undirstöður samstæðunnar til lengri tíma litið.

Festi er þátttakandi í UN Global Compact á Íslandi sem er sáttmáli Sameinuðu Þjóðanna og atvinnulífs um ábyrga starfshætti og stærsta alþjóðlega sjálfbærniframtak í heimi. Með þátttöku sinni skuldbindur félagið sig til að aðlaga rekstur og starfsemi sína að tíu grundvallarmarkmiðum sáttmálans á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfis og góðum stjórnarháttum ásamt Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Sjálfbærniupplýsingagjöf

Á hverju ári birtir Festi sjálfbærniskýrslu sem hluta af ársskýrslu félagsins auk þess sem sjálfbærniuppgjör byggt á ESRS hefur verið birt síðastliðin ár.

Félög samstæðu Festi birta sjálfbærniskýrslur árlega. Nýjustu skýrslurnar má nálgast hér:

Sjálfbærnistefna og markmið

Sjálfbærnistefna Festi hefur það hlutverk að marka áherslur samstæðu Festi og rekstrarfélaga þess í umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.

Sjálfbærnistefna samstæðunnar setur skýr markmið fyrir félagið auk þess að lista upp ýmsar stuðningsaðgerðir í umhverfis-, félags- og stjórnarháttum. Hún styður við langtímasýn okkar um ábyrgari rekstur og sjálfbærari framtíð og styrkir þar með samstæðuna í vegferð sinni um að vera meðal leiðandi fyrirtækja í sjálfbærni á Íslandi.

Festi skuldbindur sig til að ná nettónúll losun í eigin rekstri árið 2031 (þ.e. þar sem við höfum sjálf bein áhrif á losun) og nettónúll losun fyrir alla samstæðuna árið 2050 (hér bætist við losun frá virðiskeðjunni).Við ætlum því að hafa lokið útskiptum kælimiðla sem ganga fyrir F-gösum í lok árs 2031 og að draga úr losun vegna bruna jarðefnaeldsneytis í rekstri samstæðunnar um 90% í lok árs 2031 m.v. árið 2023.

Önnur markmið má lesa um í stefnunni sjálfri sem nálgast má hér fyrir neðan:

Árangur

Hér fyrir neðan má sjá dæmi um árangur samstæðunnar á síðustu árum:

Einkunn úr sjálfbærniúttekt Reitunar
Bein losun frá rekstri
Úrgangur og flokkunarhlutfall
Sjálfbærnimarkmið ársins 2026

Stefnuáherslur

Samfélagið

Við höfum jákvæð áhrif á samfélagið og okkar nærumhverfi með því að hafa sjálfbærni að leiðarljósi í allri okkar ákvörðunartöku

Starfsfólk

Við ætlum að vera framúrskarandi og eftirsóttur vinnustaður þar sem ýtt er undir starfsþróun og heillandi vinnumenning

Rekstrarfélög

Við styðjum okkar rekstrarfélög til vaxtar og leitum nýrra tækifæra með hagkvæmri stoðþjónustu á sviði rekstrar, fjármögnunar, mannauðsmála, stafrænna lausna og sjálfbærni

Samstarfsaðilar

Við byggjum upp langtíma-viðskiptasambönd við okkar viðskiptavini, birgja og aðra samstarfsaðila

Hluthafar

Við sköpum virði fyrir okkar hluthafa með sjálfbærum langtímafjárfestingum