Uppljóstrunar- og tilkynningargáttir

Að neðan má finna tengla í tilkynningar- og uppljóstrunargáttir fyrir samstæðu Festi. Þessar gáttir eru ekki til þess að tilkynna áhyggjur um verð, gæði vara eða aðrar almennar ábendingar. Við biðjum ykkur að koma slíkum ábendingum beint til viðeigandi fyrirtækja innan samstæðu Festi þar sem þeim verður komið í viðeigandi farveg.
Tilkynningargátt
Tilkynningargátt samstæðunnar er ætluð utanaðkomandi aðilum, birgjum og viðskiptavinum Festi og dótturfélaga sem vilja koma á framfæri ábendingum um mögulegt misferli eða ámælisverða háttsemi í tengslum við virðiskeðju fyrirtækisins. Til dæmis, umhverfis, mannréttingarbrot eða aðrar ábendingar.
Uppljóstrunargátt
Uppljóstrunargáttin er ætluð núverandi og fyrrum starfsfólki Festi og dótturfélaga, sem og öðrum aðilum sem hafa eða hafa haft tengsl við félögin í gegnum störf sín, þjónustu, viðskipti eða samstarf, og vilja koma á framfæri ábendingum um mögulegt misferli eða ámælisverða háttsemi í tengslum við starfsemi félaganna.
Stefna Festi hf. um uppljóstrun og tilkynningar frá virðiskeðju
Samstæða Festi hefur sett sér stefnu um verklag og ábyrgð við móttöku, rannsókn og meðferð uppljóstrunarmála innan Festi og dótturfélaga, í samræmi við lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara, lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ásamt öðrum viðeigandi reglum.
Stefnan skilgreinir jafnframt verklag í tengslum við móttöku tilkynninga um mannréttindabrot frá aðilum í virðiskeðjum samstæðunnar sem og viðskiptavinum.
Stefnan skilgreinir jafnframt verklag í tengslum við móttöku tilkynninga um mannréttindabrot frá aðilum í virðiskeðjum samstæðunnar sem og viðskiptavinum.