30/10/2025

Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025

Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 30. október 2025.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 31. október 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint í spilaranum hér að neðan. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan að fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Ef streymi virkar ekki skal prófa að endurhlaða síðunni.

Upplýsingar og skjöl

Engir hlutir fundust