Skilmálar gjafakorta Festi

Reglur og skilmálar gjafakorts
Gjafakortið er til greiðslu á vörum og þjónustu hjá félögum Festi hf. kt. 540206-2010, þ.e. ELKO, Krónunni, Lyfju og N1. Kortin eru einkennd Gjafakort Festi og eru eign Festi hf. og gefin út í samstarfi við Landsbankann hf., hér eftir nefndir útgefendur.
Handhafi kortsins getur stöðvað notkun þess og innkallað á hefðbundnum skrifstofutíma með því að hringja þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000 eða sent tölvupóst á netfangið gjafakort@festi.is
Kortið er verðmæti, sem skal gæta eins og peninga. Þetta eru handhafakort og týnt kort er tapað fé. Handhafi kortsins ber ábyrgð á öllum greiðslum sem verða vegna notkunar gjafakortsins. Útgefendur kortsins eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, verkfalls, verkbanns, eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum.
Útgefendur kortsins eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila. Sérhver ágreiningur eða tjón vegna kaupa á vöru eða þjónustu, sem greidd er með kortinu, er útgefanda þess algerlega óviðkomandi og án ábyrgðar fyrir hann.
Á kortinu er QR kóði sem hægt er að skanna til að sjá stöðu gjafakortsins. Innistæða gjafakortanna fyrnist ef ekki er tekið útaf kortinu í 2 ár frá útgáfu þess.
Festi hf. endurgreiðir ekki upphæðir sem eru greiddar inn á gjafakort né kostnað við sendingu og pökkun.